Gauksmýratjörn er við þjóðveginn í Línakradal neðan við Sveitasetrið á Gauksmýri. Tjörnin er endurheimt votlendi og þar verpir fjöldinn allur af fuglum. Fuglaskoðunarhús hefur verið reist við tjörnina og göngustígur aðgengilegur hjólastólum liggur frá bílastæði við þjóðveginn að skoðunarhúsinu.
ad