Flýtilyklar
Söfn, setur og sýningar
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Byggðasafn Húnvetninga og strandamanna stendur við Reykjaskóla í Hrútafirði og er áhugavert safn er varðveitir fjölda merkra muna úr héruðunum við Húnaflóann. Verið velkomin í heimsókn.
Lesa meira
Selasetur Íslands
Selasetur Íslands á Hvammstanga er fræðslusetur um seli við Ísland. Þar getur að líta sýningu um seli, líffræði þeirra og sambúð sela og manna. Vorið 2022 var opnuð sérsýning um rostunga. Þar er einnig rekið minjagripaverslun, upplýsingamiðstöð Húnaþings vestra, Seal Travel ferðaskrifstofa og rannsóknardeildir.
Lesa meira
Verslunarminjasafn Bardúsa
Handverkshúsið Bardúsa er rekið í gömlu pakkhúsi við höfnina á Hvammstanga og þar er einnig að finna verslunarminjar frá krambúð Sigurðar Davíðssonar.
Lesa meira
Riishús á Borðeyri
"Damerne í Riishus" eru með sumarrekstur í Riishúsi á Borðeyri, einu elsta verslunarhúsnæði landsins. Kaffisala, nytjamarkaður og handverkssala.
Lesa meira
Leirhús Grétu
Gréta Jósefsdóttir rekur gallerí og vinnustofu heima á Litla Ósi í Miðfirði.
Lesa meira