Hátíðarhöld í tilefni 70 ára lýðveldisafmæli Íslendinga verða haldin sunnan við Félagsheimili Hvammstanga 17. júní kl. 14:00.
Dagskrá hefst með hátíðarræðu, ávarpi fjallkonu og söng karlakórsins Lóuþræla. Að því loknu verða boðnar til sölu grillaðar pylsur, hátíðarnammi og 17 júní blöðrur og -fánar. Í lokin verður farið í leiki og opnað fyrir sápurennibrautina á Bangsatúni. Áætluð dagskrárlok eru kl. 16:30.
Hittumst öll í hátíðarskapi. Félagar úr Lionsklúbbnum Bjarma.